Gleðikórinn er samansafn af yndislegu og frábæru
fólki sem var í Háskólakórnum á bilinu 2000 - 2005 og kannski ríflega og vill halda sambandi um ókomna framtíð.
Viltu vera með? Sendu okkur þá línu í kommentakerfinu! :)
mánudagur, febrúar 26, 2007
Kökuboð
Minni á kökuboðið í kvöld í Hlégerðinu! Svona upp úr níu bara!
Víhííííí. Hittumst endilega í kökuboði hjá Hillu, en hvernig væri að hittast enn fyrr? Á morgun klukkan 15:15 syngur Unnur okkarHaugtussu í Söngskólanum við Snorrabraut. Við verðum að fara og hlusta, þó ekki nema væri útaf þessu skemmtilega nafni.
Vitiði mér líst bara ekkert á 2007. Ég fór með tölvuna til læknis fyrir helgi og í dag fékk ég formlegt bréf sem tjáði mér að það væri ekkert hægt að gera. Hún er s.s ekki biluð heldur ónýt! Og þar sem ég skrifa ekki Ba ritgerð tölvulaus, þá verð ég bara að gjöra svo vel að kaupa mér nýja.
Svo eru náttúrulega veggirnir eins og þeir eru, hjólið ennþá beyglað og í dag datt sjónvarpskapallinn út vegna óveðurs. Einmitt þegar ég er heima með hálsbólgu.
Það er löngu komin tími á nýja færslu og nýjan hitting! Því blæs ég til kaffi- og kökuboðs mánudaginn 26. febrúar hjá mér í Hélgerðinu. Gott að mæta bara upp úr hálf níu níu! Ég ætla baka eitthvað gott og hella upp á kaffi og það er aldrei að vita nema Lára skelli í eina köku líka!
Kristínar og Guðjónsdóttir kom í heiminn núna í kvöld (6. feb). Tölfræðin ekki komin á hreint en virðist vera rauðhærð við fyrstu skoðun. Nánari fréttir koma síðar. .....................
Update:
Stúlkan er 14 merkur og 52 cm, móður og barni heilast vel.
Jæja kæri Gleðikór... ég ætla að bjóða ykkur til kaffisamsætis á sunnudagskvöldið (4. feb) svona sjö hálf átta... ég skal baka eitthvað gott úr hússtjórnunnarskólabókunum og hita kakó og kaffi... og svo munuð þið ekki anga af reykingalykt eins og á kaffihúsum... ég hlakka til að sjá ykkur... er orðin þyrst í gleðikórsslúður !
kveðja Ásdís (á heima að Hæðargarði 18... fyrir þá sem rata ekki ennþá)