n

sunnudagur, desember 09, 2007

Jólastund tra lala


Kæri Gleðikór....


Ég var að hugsa um að bjóða til gleðilegrarjólastundar... Föndurstund.... Ég mun kaupa kassa af mandarínum og finna til jólakortaskapalónin mín og föndurdótið mitt... breiða dagblöð yfir jóladúkinn minn og svo komið þið með það sem þið viljið föndra... það getur verið t.d að mála mynd til að gefa í jólagjöf, jólakort (og ég get gefið ykkur hugmundir), pakka inn jólagjöfum, skrifa á jólakortin, setja á þau frímerkin, mála á jólapappír, sauma út jólamynd, setja nýtt greni í aðventukransinn, finna út hvaða pera það er sem er sprunginn í jólaseríunni, gera músastiga, já eða bara sitja og dást að hinu fólkinu föndra.... ég ætla ekki að baka fyrir jólin svo þið veriðið að koma með jólasmákökurnar sjálf ;-)..... Helgi mun þeyta jólaskífum inn í stofu svo að rétt jólastemning svífi yfir vötnum.....

Mæting um hálf átta – átta.. miðvikudaginn 12. desember. eða bara um leið og þið eruð búin að kyngja síðasta kvöldverðarbitanum og eruð tilbúin að föndra... eða jólast eitthvað ... ég verð heima

Kv Ásdís

11 Comments:

Blogger Erna María said...

frábært, ég ætla sko að mæta

10 desember, 2007 09:11  
Anonymous Nafnlaus said...

VEI ég kem sko um leið og ég get, kannsk um hálf níu!

10 desember, 2007 09:36  
Anonymous Nafnlaus said...

ÆÐI!!! hlakka til, sjáumst

Ég skal koma með eitthvað af smákökum, amma hennar mörtu var að birtast með "smá smakk" af smákökunum sínum - ÁTTA sortum...

Sigga

10 desember, 2007 11:48  
Blogger Lára said...

þetta hljómar sko ómótstæðilega vel!

10 desember, 2007 12:49  
Blogger Ýrr said...

hljómar yndislega. Sé til hvort Egill og húsbóndinn séu til í að vera án mín heima.....

Annars segi ég bara gleðilega jólaföndurstund!

10 desember, 2007 13:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hljómar rosalega vel.
Mig langar einmitt að föndra jólakort en er algjörlega hugmyndasnauð :)
Stefni ótrauð á að mæta!
Kærlig hilsen,
Fríða

10 desember, 2007 14:56  
Blogger Harpa Hrund said...

Ég mæti aldeilis hress....
aldrei að vita nema ég reyni að gera eitthvað hehe hef ekki verið þekkt fyrir að vera góð föndurkona en nú mun listamaðurinn brjótast fram og þið verðið hissa
síjú

10 desember, 2007 16:50  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég vildi svo gjarnan koma, þetta var einmitt svo kósí á sama tíma í fyrra:) En verð því miður á kvöldvakt:(

Kveðja, Bidda

10 desember, 2007 19:31  
Anonymous Nafnlaus said...

Urg, ég er að fara í afmæli. Kem í næsta jólahitting (geri ráð fyrir að þeir verði fleiri)!

Góða skemmtun, dúllídúlls!

10 desember, 2007 21:12  
Blogger Unknown said...

Hljómar svo glimrandi glæsilega. Kann samt ekki við að mæta því ég þarf að vera heima að látast læra fyrir próf í Kennó sem verður á fimmtudagsmorgun.

11 desember, 2007 20:20  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ, kemst því miður ekki.
Sjáumst vonandi eitthvað fyrir jól.

Kveðja,
Fríða

12 desember, 2007 15:08  

Skrifa ummæli

<< Home