n

föstudagur, febrúar 15, 2008

Úber hallærisleg föt

Það var fámennt en mjög góðmennt á My so called life kvöldi í gærkvöldi. Gleðikórsfélagar (og ein boðflenna sem sá síðust 30 sek af þættinum) horfðu á vel valinn þátt úr seríunni góðu og var mikið hlegið. Þátturinn sem umræðir er 12 þátturinn í seríunni og kallast SelfEsteem. Fæstir höfðu séð þessa þætti svo árum skiptir og kom það okkur Ernu Maríu allaveganna dálítið á óvart að við gátum enn talað með þáttunum!

Það sem kom kannski mest á óvart var hversu ótrúlega hallærisleg föt voru í þáttunum, næstum eins og búningadeildin hafi farið yfir um því svona föt og samsetningar voru ábyggilega ekki í tísku á þessum árum!

Takk fyrir komuna, þið sem lituð við!

Hilla

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þakka kærlega fyrir að bjóða okkur að koma og horfa á þessa frábæru þætti sem er enn og verða held ég alltaf í miklu uppáhaldi.

Hlakka svo rosa til að koma og horfa á fleiri yfir fáeinum kokteilglösum....eða fleirum :)


Erna María

16 febrúar, 2008 13:46  

Skrifa ummæli

<< Home