Jólakortaföndur taka tvö
já eitthvað virðist líta svo út að fólk sé alveg ægilega upptekið fimmtudaginn næsta.... þannig að ég hef ákveðið að fresta jólastundinni um viku.... þannig að nú verða allir að taka fimmtudagskvöldið 14. desember frá og mæta til mín að Hæðargarði 18 eftir kvöldmat og föndra jólakort, hlusta á jólalög, drekka jólate, borða mandarínur og smákökur, syngja jólalög og eiga góða jólastund saman... og ennþá verða jólageisladiskar vel þegnir (þeir eru ekki til margir hér á þessu heimili)... ég verð allavegana í jólaskapi og hlakka til að fá ykkur !!!!!
Bestu kveðjur Ásdís Ármanns.
Bestu kveðjur Ásdís Ármanns.
11 Comments:
Mæti :)
Vú, hú, æði æði! ég verð með í anda og föndra ógó flott jólaskraut...
Hlakka ofsalega til að sjá ykkur! Hvernig gengur jólaboðsgleðikórsskipulagning annars, vitið þið það? xxx Sigga
Jeij, ég kem!
ég verð þá í heimaprófi :(
En vonandi skemmtið þið ykkur vel
jæja þið föndrið þá bara afmælisgjöf handa mér í staðin fyrir jólakortin. ég kem neblega heim seinna um kvöldið og verð nýorðin 15 ára.
uhm...smá óskhyggja :) 25 var það víst.
Núnú, ég trúði þér alveg sko. Þar sem ég er bara 19.
Held að eg verði líklega á e-s konar verkefnalokadjammi þetta kvöld :Þ
En við sjáumst síðar, eigið gott föndurkvöld!
á að skila risa ritgerð á föstudag en er að reyna að drífa mig að gera hana núna ég ÆTLA að komast í jólaföndur dúdúrumm
Gleðikórsjólahittingur en að meltast í hausnum á mér og Fríðu. Hann verður næstum því bókað föstudaginn 29.desember en nánari staðsetning og tímasetning auglýst síðar!
Ég stefni á að koma en þar sem ég er ekkert að föndra fyrir jólin kem ég bara með saumadótið í staðinn. En ég skal koma með þá jóladiska sem ég á.
Skrifa ummæli
<< Home